Hvítur föstudagur í borginni

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu var með rólegasta móti í morgun, enda hafði kyngt niður snjó í morgun og fóru ökumenn með gát um götur og stræti fyrir vikið. Víða um land er alhvít jörð.

\"Þau eru nokkuð snögg umskiptin og með kólnandi veðri um land allt eru líkur á éljum, en þó ekki suðaustanlands,\" segir í morgunskeyti Vegagerðarinnar og eru það orð við hæfi: \"Bleytan á vegyfirborði frýs og launhált verður því, sérstaklega sunnan- og vestantil,\" segir þar líka, ökumönnum til umhugsunar .

Hálka er mjög víða Suðvesturlandi eins og t.d. á Hellisheiði, Reykjanesbraut og víða á Höfuðborgarsvæðinu. Á Suðurlandi er snjóþekja allt austur að Kvískerum í Öræfum. Þá er einnig snjóþekja og hálka á Vesturlandi.

Á Vestfjörðum er þungfært á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og á Innstrandavegi. Snjóþekja og éljagangur er á Háldáni og á Mikladal. Ófært er á Klettshálsi og þæfingur þaðan í Þorskafjörð. Þungfært er á Kleifaheiði.

Á Norðurlandi er hálka, hálkublettir og snjóþekja en  þungfært og stórhríð í Fljótur, á Hálsum og í Hófaskarði. Éljagangur eða snjókoma mjög víða.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir.