Það eru þokkalegar líkur á hvítum jólum um mest allt land, þótt óneitanlega sé ekkert öruggt í þeim efnum. Mestu skiptir að veður verður skaplegt yfir jólahátíðina, þótt færð kunni ef til vill að spillast á Vestfjörðum og um norðan- og norðaustanvert landið, en eins er mjög hvasst suðaustanlands í dag.
Það er kuldi í kortunum, allt að 20 stigum inn til landsins fram að helgi, en svo linar frostið tök sín á láði og legi eftir því sem líður á helgina. Útlit er fyrir snjókomu fyrir norðan í dag en rigningu eða slyddu austast og heldur rólega vestlæga átt sunnan til með éljum. Hiti verður um og yfir frostmarki við ströndina, en frost 2 til 8 stig inn til landsins. Norðan 10 til 18 eftir hádegi með snjókomu og skafrenningi um landið norðanvert, en heldur hægari og él í kvöld með kólnandi veðri.
Það er hálka á nær öllum þjóðleiðum hringinn í kringum landið og snjóþekja á flestum leiðum á Suðurlandi, Vesturlandi og á Vestfjörðum. Hálka og snjóþekja er á Norðurlandi vestra, sömuleiðis austan Tröllaskaga og flughálka er í Kelduhverfi. Flughált er einnig með ströndinni og víða á norðausturhorni landsins. Á Austurlandi er hálka og snjóþekja og flughált við Vopnafjörð og þungfært á Vopnafjarðarheiði en unnið að mokstri. Flughálka og snjóþekja er svo með suðausturströndinni.
Veðurspáin yfir hátíðarnar er annars þessi:
Á Aðfangadag: Norðaustlæg átt 8 til13 m/s og él, en að mestu þurrt á Vesturlandi. Kólnar heldur, frost 4 til 15 stig, kaldast inn til landsins.
Á Jóladag: Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en él norðaustanlands og einnig syðst á landinu. Frost að 20 stigum inn til landsins.
Á annan í jólum: Suðaustlæg átt og stöku él, en þurrt og bjart fyrir norðan. Frost 0 til 12 stig, kaldast norðanlands.
Á þriðja degi jól, sunnudag: Austlæg átt, úrkomulítið og hlýnar í veðri.