Franska stórfyrirtækið Saint Gobain er hætt við að byggja 25 þúsund tonna verksmiðju á Bakka við Húsavík, að því er fram kemur í DV.
Forkólfar fyrirtækisins segja að of mikil loftmengun verði á Bakka-svæðinu, örskammt frá Húsavík miðað við þarfir PCC en í fyrrahaust var því fagnað þegar umdeildar framkvæmdir hófust þar vegna áforma PCC.
„Fyrirtækið gaf út að það ætli ekki að koma hingað en það endurreiknaði útblástur brennisteinsdíóxíðs miðað við fulllestað verkefni PCC. Það voru óhagstæðar niðurstöður sem komu út úr því,\" segir í DV.
Jóhann Kristjánsson verkfræðingur bloggar um þessa niðurstöðu á eigin facebook-síðu. Hann spyr: \"Hvernig getur það verið að tvær fremur litlar verksmiðjur á vindasömu annnesi mengi of mikið?
Hvað þá með Helguvík svo ekki sé talað um Grundartanga?\"
Jóhann segir franska fyrirtækið taka loftslagsmál í dag mjög alvarlega. Stóra spurningin sé:
\"Ef franskt iðnfyrirtæki tekur það upp hjá sjálfu sér að hætta við verksmiðju vegna mengunar, hvað með Íslendinga sjálfa?
Af hverju hamast stjórnmálamenn við að draga mengunarvalda til lands sem hingað til hefur þótt vera nokkuð hreint á heimsvísu.
Land með viðkvæm norðurhjara vistkerfi, hreint loft og vatn.
Þetta er í raun alveg furðulegt og sérlega í ljósi þess að nýlega er afstaðin heimsráðstefna um loftslagsmál þar sem lögð var ofuráhersla á að draga úr loftmengun.\"