„hví er ekki hægt að laga þetta?“

Egill Helgason fjallar um Bráðamóttökuna í pistli á Eyjunni í dag. Hann segir frá því að allir eigi skelfingarsögur af henni og hafi annað hvort upplifað ástandið þar sjálfir eða heyrt af reynslu ættingja og vina. Hann spyr sig hvers vegna ekkert breytist þó að sama umræðan gjósi upp aftur og aftur:

„Hvers vegna þetta úrræðaleysi? Hví er ekki hægt að laga þetta? Allir hljóta að skilja að þetta er algjörlega til skammar- og stórhættulegt. Líf og heilsa sjúklinga eru í veði.“

Hann segir þetta ekki geta verið svona flókið:

„Jú, það þarf meira fjármagn. Fleiri starfsmenn- meira pláss. Ef ekki er hægt að stækka Bráðadeildina við Borgarspítalann þarf að opna aðra slíka deild, sem tæki þá kannski á öðruvísi vandamálum.“

Hann segir að heilbrigðisyfirvöld verði að bæta þessi mál. Ef þau geri það ekki strax í vetur „þá getur maður ekki dregið aðra ályktun en að þarna ríki meiriháttar sinnuleysi.“