Hleypt hefur verið af stokkunum átakinu Hættum að urða – Finnum lausnir, þar sem kastljósi er varpað á ókosti urðunar og fólk hvatt til þess að þrýsta á stjórnvöld um að hætta urðun á sorpi. Opnaður hefur verið nýr vefur, finnumlausnir.is, þar sem fólk getur kynnt sér málið og skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að banna urðun sorps.
Hér á landi eru á hverju ári urðuð nálægt 220 þúsund tonn af sorpi. Skipuleggjendur átaksins segja um sé að ræða gríðarlegt vandamál sem Íslendingum beri skylda að finna lausn á og stöðva. Urðun í slíku magni hefur slæm áhrif á jarðgæði og loftgæði og sé í eðli sínu slæm nýting á takmörkuðum auðlindum jarðarinnar. Sorp getur verið margar aldir að brotna niður. Á vef átaksins, finnumlausnir.is, má finna margvíslegar upplýsingar um neikvæð áhrif urðunar sorps og mögulegar lausnir á vandamálinu.
„Við finnum ekki lausnir fyrr en við byrjum að leita að þeim. Fyrsta skrefið er að ákveða að núverandi ástand geti ekki varað lengur. Staðreyndin er að nú þegar eru þær lausnir til staðar sem duga til að stöðva urðun alfarið á skömmum tíma. Við viljum gefa fólki færi á að senda stjórnvöldum skýr skilaboð um að líta beri á sorp sem auðlind, ekki vandamál. Með réttu hugarfari finnum við lausnir sem henta hverju sinni. Og með samstilltu átaki getum við hvatt stjórnvöld til að stöðva urðun,“ segir Halldóra Geirharðsdóttir, talsmaður átaksins Hættum að urða.
Íslenska gámafélagið leiðir átakið, en með því segist fyrirtækið vilja stuðla að skilvirkari og umhverfisvænni leiðum við förgun og endurvinnslu, þar sem hætt verði að líta á rusl sem úrgang, heldur fremur sem hráefni til að nýta. Fyrirtækið segir að hægt sé að hætta nánast allri urðun með því að flytja ruslið til brennslu í Evrópu, þar sem það nýtist til húshitunar. Með því nýtist líka flutningsgeta frá landinu verið hefur ónýtt vegna misræmis í magni á inn- og útflutningi. Sótspor landsins stækkar ekki því skipin eru hvort eð er á ferðinni.
„Frá stofnun fyrir tuttugu árum síðan hefur Íslenska gámafélagið verið leiðandi í innleiðingu á flokkun og endurnýtingu úrgangs. Á ári hverju falla til frá heimilum og fyrirtækjum landsins um 530 þúsund tonn af almennu rusli og af því hefur um helmingurinn verið urðaður. Með aukinni endurvinnslu er raunhæft að draga úr urðun um sem nemur 20 til 50 þúsund tonnum, en eftir standa þá samt 150 til 180 þúsund tonn sem urða þarf á hverju ári. Með því að flytja sorpið til Evrópu þar sem það er nýtt til húshitunar náum við hins vegar strax nærri 100 prósenta endurvinnslu á öllu rusli.,“ segir Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins.