Palestínsku samtökin BDS (Boycott, Divestment and Sanctions) hvetja Hatara til að draga atriði sitt úr Eurovision söngvakeppninni, sem mun fara fram í Ísrael um miðjan maí. RÚV.is greinir frá.
Í yfirlýsingu á heimasíðu BDS segir að áhrifamestu skilaboðin um samstöðu séu að sniðganga keppnina með öllu. Biðla þau til allra þátttakenda í söngvakeppninni að draga sig úr keppni, en nefna sérstaklega Hatara þar sem hljómsveitin hefur opinberlega lýst yfir stuðningi við Palestínu.
Yfirlýsing BDS í heild sinni:
„Palestínumenn hvetja alla keppendur Eurovision til að draga sig úr keppninni sem fer fram í Tel Aviv, þar sem aðskilnaðarstefna er við lýði. Þar með taldir eru þátttakendur Íslands, Hatari, sem hafa lýst yfir stuðningi við réttindi Palestínumanna.“
Listamenn sem kjósa að ganga gegn hvatningu Palestínumanna til sniðgöngu og hyggjast spila í Tel Aviv þvert á ákall okkar, geta ekki minnkað skaðann sem þeir valda mannréttindabaráttu okkar undir þeim formerkjum að það sé í samráði við tiltekna Palestínumenn.
Borgaralegt samfélag Palestínumanna hafnar slíku yfirklóri, enda hefur það lært af baráttunni gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður Afríku.
Við erum þakklát allri samstöðu sem okkur er sýnd en getum ekki samþykkt gjörðir sem augljóslega grafa undan friðsamlegri mannréttindahreyfingu okkar. Áhrifamesta leiðin til að tjá samstöðu við málstað okkar er að hætta við að koma fram í Ísrael aðskilnaðarstefnunnar.
Við hvetjum alla palestínska listamenn til þess að skipuleggja ekki neina viðburði með listamönnum sem brjóta gegn tilmælum um menningarlega sniðgöngu Ísraels.“