Hvetja fólk til að kaupa íslenskt

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það gríðarlega mikilvægt að fólk reyni að versla sem mest við innlend fyrirtæki og innlenda framleiðslu á tímum kórónaveirunnar. Þetta kemur fram í sameiginlegum pistli hennar og Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

„Nú er unnið að því dag og nótt að tryggja heilsu almennings á tímum kórónuveirunnar. Landsmenn allir verða fyrir áhrifum með einum eða öðrum hætti enda hefur daglegt líf farið úr skorðum og fyrirtæki í öllum atvinnugreinum finna fyrir samdrætti,“ segir í greininni.

„Stjórnvöld setja í forgang að tryggja lífsafkomu fólks en það er líka margt sem við getum saman gert til að koma samfélaginu sterku í gegnum þessar hremmingar. Mikilvægt framlag er að landsmenn allir, fólkið í landinu og fyrirtækin, skipti sem mest við innlend fyrirtæki, og þar er engin atvinnugrein undanskilin. Með því að velja íslenskt og skipta við innlend fyrirtæki verður til keðjuverkun sem nær yfir allt samfélagið. Þannig verjum við störf og stuðlum að uppbyggingu og tryggjum að heimilin, efnahagslífið og samfélagið allt haldist gangandi.“

Þá segir að við búum nú við gjörbreyttar aðstæður vegna veirunnar en fyrir nokkrum vikum og að ríki heimsins séu mun háðari eigin framleiðslu. „Við erum lánsöm hér á landi og njótum góðs af fjölbreyttum iðnaði. Öflug og fjölbreytt matvælaframleiðsla tryggir landsmönnum fæðuöryggi og góðar vörur. Með því að velja íslensk matvæli verjum við störf um land allt, í sveitum landsins og sjávarplássum sem og á höfuðborgarsvæðinu, störf í fiskvinnslu, við grænmetisræktun, í bakaríum og allt þar á milli.“

„Hönnun, líf- og heilbrigðistækni, snyrtifræði, húsgagnasmíði og leikjaframleiðsla – þetta er einungis brot af þeim lifandi og fjölbreytta íslenska iðnaði sem við getum stutt við með því að velja íslenskt,“ segir svo í greininni. „Þá má ekki gleyma að með hugviti landsmanna hafa orðið til grænar lausnir sem nýst geta heiminum öllum við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hérlendis sem og í öðrum ríkjum heims.“

Þá segir að við getum einnig skapað verðmæti með því að ferðast innanlands. „. Með því að skipta við íslenska verslun, hvort sem hún er í hverfinu eða heima í stofu í gegnum vefinn, sköpum við störf fyrir nágranna okkar, vini og fjölskyldumeðlimi. Fyrirtækin hafa aðlagast aðstæðum hratt og gera vörur og þjónustu aðgengilegri til að mynda með því að bjóða upp á heimsendingu. Þannig snúast hjólin áfram og verðmæti verða til.“