Kirkjugarðar Reykjavíkur vekja athygli á opnunartíma og aðgengi yfir hátíðirnar ásamt því að hvetja fólk til þess að heimsækja leiði ættvina.
Leggja þeir áherslu á að jólaskreytingar á leiðum séu alfarið gerðar úr lífrænum efnum en eftir áramót er slíkum skreytingum fargað með vistvænum hætti í jarðgerð kirkjugarðanna.
Á aðventunni, um jól og áramót eru Fossvogskirkjugarður, Gufuneskirkjugarður, Kópavogskirkjugarður og Hólavallagarður opnir allan sólarhringinn nema Fossvogskirkjugarður er lokaður fyrir allri bílaumferð á aðfangadag milli klukkan 11:00-14:00 vegna mikils fjölda gangandi vegfarenda og slysahættu sem getur skapast.
Bendir starfsfólk kirkjugarðanna fólki sem ekki geti vitjað leiða ástvina sinna nema koma akandi að koma annað hvort fyrir eða eftir tilgreindan lokunartíma.
Þá benda þeir fólki á bílastæði við Fossvogskirkju, Suðurhlíð og Vesturhlíð. Á Þorláksmessu og aðfangadag er hringakstur í Gufuneskirkjugarði með aðkomu eingöngu frá Hallsvegi og farið er út norðan megin inn á Borgaveg eins og verið hefur.
Símavarsla verður á skrifstofu Kirkjugarðanna á aðfangadag og gamlársdag frá klukkan 08:00 – 12:00 fyrir þá sem þurfa að leita upplýsinga og aðstoðar.