Hrönn Sveinsdóttir og Natalie G. Gunnarsdóttir, segja íhaldssemi og tvöfalt siðgæði einkenna reglur um að ekki megi taka „selfie“ fyrir utan kjörstaði á laugardaginn. Þær mæta á Þjóðbraut í kvöld til Lindu Blöndal.
Hrönn er stjórnarformaður Vökunnar og Natalie stjórnarmaður í nýstofnuðum samtökum sem nefnd eru Vakan. Heilmikið partý verður haldið á laugardagskvöldið í Valsheimilinu en Vakan snýst um að fá yngra fólk til að skila sér á kjörstaði. Fólk á aldrinum 18 til 29 ára skilar sér síður á kosningastað. Fjölmargir af helstu tónlistarmönnum dagsins í dag leggja fjörinu lið og gerir það frítt, s.s. Páll Óskar, Reykjavíkurdætur, MC Gauti, Sturla Atlas, Góði úlfurinn, Cell 7, FM Belfast, Gus Gus, Emmsé Gauti og Úlfur Úlfur og þá er ekki allt upp talið.
Vakan bað ungt fólk um að mæta á kjörstað og taka mynd af sér utan við kjörstaðinn, eða „selfie“. Myndin gilti sem aðgöngumiði í partýið.
Kjörstjórn í Reykjavík telur slíkt ólöglegt en Vakan heldur sínu striki og vill láta á reyna á málið fyrir dómstólum.