Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti í gærmorgun opnunarávarp á ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Norðurlanda í fókus og utanríkisráðuneytisins sem ber titilinn „Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?“.
Stjórnmálamenn, sérfræðingar, fræðimenn og áhugamenn um alþjóðamál flytja þar erindi og taka þátt í fjölbreyttum umræðum um alþjóðasamvinnu.
Í ræðu sinni sagði Guðlaugur Þór mikilvægt að þing og þjóð stæðu saman gegn þeirri einangrunarstefnu sem nú ryður sér til rúms í Evrópu og á Íslandi.
„Alþjóðleg samvinna og virk hagsmunagæsla er undirstaða þess að lífskjör og tækifæri hérlendis geti áfram orðið með því sem best sem gerist í heiminum,“ sagði Guðlaugur Þór.
„Þar er samstarfið innan Evrópska efnahagssvæðisins lykilþáttur, sem og vestræn samvinna í þágu öryggis. Síðast en ekki síst felur þátttaka í alþjóðlegri samvinnu í sér viðurkenningu erlendra ríkja á því að Ísland sé frjálst og fullvalda ríki.“
Fyrsta málstofa dagsins fjallaði um áhrif ungs fólks á stjórnmál. Bergur Ebbi Benediktsson flutti erindi og sagði unga fólkið standa frammi fyrir stórum áskorunum sem ekki væri hægt að takast á við á grundvelli stjórnmálahefðar 20. aldarinnar.
Najmo Fiyasko, nemi í FÁ og YouTube áhrifavaldur, sagði sögu sína en hún kom til Íslands sem flóttamaður frá Sómalíu og hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna í heimalandinu. Í kjölfarið fylgdu pallborðsumræður um áhrif ungs fólks þar sem sérstaklega var rætt um þær leiðir sem ungt fólk hefur til að hafa áhrif í nútíma lýðræðissamfélagi.