Greiningardeildin skoðar þróun eigna og skuldir heimilanna.
Síðustu misseri hefur oft verið talað um að sparnaður heimila sé að aukast.
Hvert fer þessi sparnaður?
Er hann að aukst.
Þjóðhagslegur sparnaður var ríflega 29% af vergri landsframleiðslu árið 2016 og hefur ekki verið meiri frá árinu 1965. Þrátt fyrir að þjóðhagsreikningar bendi til aukins sparnaðar er að sjá frekar litla aukningu á innlánum og verðbréfaeign heimila.
Aukin sparnaður heimila virðist fyrst og fremst felast í niðurgreiðslu skulda. Að greiða upp skuldir má líkja við að heimilin kaupi sínar eigin skuldir. Það má kalla það trausta og nokkuð áhættulitla fjárfestingu sem eykur hreina eign jafn mikið og ef sparað er með öðrum hætti.
Skuldir heimilanna sem hlutfall af landsframleiðslu eru enn að minnka en ef horft er framhjá miklum hagvexti má sjá að lán til heimila hafa aðeins vaxið síðustu mánuði. Sú útlánaaukning er að langmestu leyti vegna íbúðalána.
rtá
Nánar www.arionbanki.is