„hversu oft er hægt að lýsa yfir stríði?“

Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, er harðorður í garð forystu verkalýðshreyfingarinnar í leiðara Fréttablaðsins í dag. Hann segir stríðsyfirlýsingar Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, vera kunnuglegt stef og að forystan, sem hann segir umboðslausa til að boða sínar byltingar og kerfisbreytingar, sæki vísvitandi í átök:

„Hversu oft er hægt að lýsa yfir stríði? Hjá forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar þarf tilefnið oft ekki að vera mikið. Þau ummæli fjármálaráðherra að áform um lækkun tekjuskatts yrðu endurskoðuð ef samið verður um óábyrgar launahækkanir jafngiltu, að mati formanns VR, stríðsyfirlýsingu. Þetta er orðið kunnuglegt stef. Ólíkt þeim sem nú ráða innan stéttarfélaganna – og skeyta lítt um hagfræðileg lögmál – þá ber stjórnvöldum skylda til að gæta að stöðugleika. Verði niðurstaða kjarasamninga í líkingu við þær launakröfur sem verkalýðsfélögin hafa sett fram munu afleiðingarnar birtast í frekari gengisveikingu og enn hærri verðbólgu. Við slíkar aðstæður er það ekki valkostur fyrir ríkisstjórnina og Seðlabankann að sitja aðgerðalaus hjá.“

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/12/21/hordur-segir-ekki-heila-bru-malflutningi-verkalydshreyfingarinnar-hversu-oft-er-haegt-ad-lysa-yfir-stridi/