Auglýsingastofan Brandenburg var sigursæl á nýafstaðinni auglýsingahátíð – og var valin stofa ársins annað árið í röð. Þeir Ragnar Gunnarsson og Jón Ari Helgason frá Brandenburg eru í stórskemmtilegu viðtali í vðskiptaþætti Jóns G. í kvöld og ræða auglýsingamarkaðinn og nokkrar verðlaunaauglýsingar. Þeir segja meðal annars frá því hvernig nafnið WOW varð til á sínum tíma. Það kom fyrir algjöra tilviljun.