Hvernig var neyðarláninu eytt?

Í bók­inni Kaupt­hink­ing: Bank­inn sem átti sig sjálfur er aðdrag­and­inn að veit­ingu 500 milljón evra neyð­ar­láns Seðla­banka Íslands til Kaup­þings rak­inn ítar­lega og ýmsar áður óbirtar upp­lýs­ingar birtar um þann aðdrag­anda. Þar eru einnig nýjar upp­lýs­ingar um hvernig neyð­ar­lán­inu var ráð­staf­að.

Á meðal þess sem þar er greint frá er að þann 21. apríl 2008 var sam­þykkt sér­stök banka­stjórn­ar­sam­þykkt, nr. 1167, um hver við­brögð Seðla­banka Íslands við lausa­fjár­vanda banka ætti að vera. Í regl­unum var sér­stak­lega kveðið á um að skipa ætti starfs­hóp innan bank­ans til að takast á við slíkar aðstæður og gilda ætti ákveðið verk­lag ef aðstæður sem köll­uðu á þraut­ar­vara­lán kæmu upp. Verk­lag­inu var skipt í alls sex þætti. Í sam­þykkt­inni var líka fjallað um við hvaða skil­yrði lán til þraut­ar­vara kæmu til greina og í henni var settur fram ákveð­inn gát­listi vegna mögu­legra aðgerða Seðla­bank­ans við slíkar aðstæð­ur.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2018-11-15-hvernig-var-neydarlanid-veitt-og-hvernig-var-thvi-eytt/