Hvernig tölum við teprulaust um kynlíf?

Kynhlutverkin voru í aðalhlutverki í þættinum Fólk með Sirrý á Hringbraut í gærkvöld, en þar birtust Pörupiltar sem hafa farið mikinn í grunnskólum landsins og frætt þar ungt fólk um kynlíf.

Þátturinn verður endursýndur í dag og sjáanlegur hér á hringbraut.is er alls ekki við hæfi húmorslausra og þeirra sem taka umræðu dagsins alltof alvarlega.

Pörupiltarnir kalla nefnilega ekki allt ömmu sína í þessum efnum og eru alls ófeimnir við að klóra sér pungnum á meðan talið berst að því hvernig hinn dæmigerði karlfauti getur hagað sér, en það er ekki síður athyglisvert að sjá þá breytast í miklar dömur sem kunna að haga sér eins og hefðarkonur, svo sem gerist í seinni hluta þáttarins í kvöld.

Þátturinn er frábær kennslustund fyrir ungt fólk og foreldra til að kynnast því hvernig hægt er að tala um kynlíf og samlíf fólks á teprulausan og hispurslausan máta, en þess má geta að tæknifólk Hringbrautar varð að hafa sig allt við til að springa ekki úr hlátri þegar þátturinn var tekinn upp.

Fólk með Sirrý er frumsýnt öll miðvikudagskvöld klukkan 20:00 í haust og vetur.