Eru hipparnir smeykir við efri árin?

Helgi Pétursson hélt áfram að fjalla um málefni eldra fólks í þætti sínum Okkar fólk á Hringbraut í gærkvöld og fækk þá til sín góða gesti til að ræða kjör þeirra og aðstæður, en Helgi, sem sjálfur verður 67 ára á næsta ári, hefur farið hringinn um landið til að kynna sér þessi mál.

Helgi minnti á þátt sinn með þessum orðum: \"Hvað eru þeir margir sem ekki geta séð sér farborða með ellilífeyri sínum? Fólk stendur uppi ráðþrota eftir að hafa greitt í lífeyrissjóð í 40 ár og á ekki til hnífs eða skeiðar. Munum líka að söfnun í lífeyrissjóð átti að vera viðbót við lágmarksframfærslulífeyri frá hinu opinbera.  Hvenær breyttist það? Þessi kjör blasa við þúsundum manna þegar fjölmenn kynslóð,  \"hippakynslóðin\" ætlar að njóta efri áranna.  Hvað er til ráða,\" spyr Helgi. 
 
Gestir þáttarins Okkar fólk í gærkvöld, sem enddursýndur er í dag  eru þau Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og formaður stjórnar Eirar, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og Erna Indriðadóttir sem nú situr á Alþingi og hefur fjallað mjög um málefni aldraðra á síðustu árum.
 
Þáttinn má nálgast hér á hringbraut.is.