Mesta sýklabælið á heimilinu er iðulega borðtuskan. Þetta kemur fram í máli Margrétar Sigfúsdóttir skólastjóra Hússtjórnarskólans en hún er gestur í þættinum ,,Fólk með Sirrý” á Hringbraut í kvöld.
Yfirskrift þáttarins er \"Með tuskuna að vopni.” Margrét gefur mörg góð ráð til að halda heimilinu hreinu. Hún segir að alltof noti fólk borðtuskuna líka á gólfið og geymi hana svo harða og illa lyktandi í einni hrúgu á vaskinum.
Best er að skola borðtuskuna oft og vel úr volgu vatni, vinda hana og láta hana hanga á vaskinum eða leggja hana yfir kranann svo lofti um tuskuna. Svo þarf skipta um borðtusku á tveggja daga fresti og þvo við 90 gráða hita.
Mörg önnur góð ráð um heimilishald koma fram í þættinum.