Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, segir Ísland skólabókadæmi um þjóð, sem hefur not fyrir erlenda fjárfestingu, en um þessi mál var rætt í þættinum Viðskiptavikan sem var á dagskrá Hringbrautar í gærkveldi. Umræðuefnið var meðal annars hvað væri hægt að gera til að auka við erlenda fjárfestingu á Íslandi. Meðal gesta voru Haraldur Flosi Tryggvason, lögmaður, en hann segir of margar hindranir í veginum fyrir erlenda fjárfesta. Þar nefndi Haraldur krónuna sem stærsta veikleika Íslands sem fjárfestingarkosts.
Í þættinum var einnig fjallað um markhópinn ,,ungt fólk” og hvernig fyrirtæki eiga að tala við kynslóðina sem er alltaf sögð ,,tengd.” Þá var rætt um helstu skattabreytingar undanfarinna ára, í kjölfar samantektar Viðskiptaráðs sem birt var á dögunum. Umsjónarmaður þáttarins er Dögg Hjaltalín og þáttinn má horfa á hér að neðan.