Hverjir tilheyra nýjum fordómaflokki?

\"Stofnun þess háttar stjórnmálaafls er fullkominn vitnisburður þess að jafnvel á Íslandi býr vont fólk,\" skrifar Tryggvi Haraldsson, pistlahöfundur á Hringbraut um stofnun Íslensku þjóðfylkingarinnar - og hann vill fá að vita hvaða fólk þetta er sem þar elur á hatri og tortímingu. 

Tryggva er ekki skemmt vegna tilkomu þessa nýjasta stjórnmálaafls á Íslandi sem hann telur vera skilgetið afkvæmi Útvarps Sögu, en hér sé komið fyrirbæri sem sé \"stofnað til þess eins að skapa hatur og tortíma náungakærleik og skynsemi á Íslandi.\" Og hann minnir á í þessum efnum að þetta gerist árið 2016, ekki 1939.

\"Íslenska þjóðfylkingin vill ganga úr Schengen,\" skrifar Tryggvi \"hætta EES samstarfinu, stórefla löggæslu og herða landamæraeftirlit án þess svo mikið sem útskýra fyrir aðdáendum sínum hvað í því felst. Sjálf stefnan um að stórefla löggæslu en ganga á sama tíma úr Schengen er álíka mikil rökleysa og það að segjast geta tryggt grunnréttindi fólks án stjórnarskrár.\"

Hann segir að auk þess stefni þessi nýi „efnilegi“ flokkur á það að auka þátttöku Íslands í eigin vörnum og verði hver og einn að leggja sína merkingu í það með hliðsjón af samhengi hlutanna: \"Ég skora á allt fólk,\" skrifar Tryggvi \"hvar sem það er í samfélaginu að tala opinskátt um það hvort það sé viljugt til að styðja slíkt afl sem tilbúið er að kynda undir mannfyrirlitningu, einangra sig í alþjóðasamstarfi á árinu 2016 og troða á trausti og verðmætustu gildum í samfélagi okkar á borð við virðingu fyrir margbreytileika og náungakærleik.

Ég hyggst ekki eiga frekari samskipti við það fólk í mínu lífi og það væri fínt að vita hverjir það eru.\"