Ísland sker sig rækilega úr í fjölgun ferðafólks á heimsvísu, svo mjög að engin þjóð reynist einu sinni háldfrættingur á við fámennu þjóðina við ysta haf. Túristum hér á landi fjölgaði um 30% milli áranna 2014 og 2015, en meðaltalið á hei,svísu er 4,4%.
Það land sem kemst næst Íslandi í þessum efnum er Svíþjóð, en þar fjölgaði ferðafólki að utan um rösklega 10% að því er fram kemur í gögnum Alþjóðaferðamálastofnunarinnar sem Samtök ferðaþjónustaunnar á Íslandi hafa gert aðgengilegar.
Athygli vekur að ferðafólki til Afríku fækkar um 5,2% á árunum 2014 til 2015 og þá sker Finnland sig líka rækilega úr af einstökum þjóðríkjum, en þar fækkaði erlendum ferðamönnum á umræddu tímabili um 4,2%.
Noregur og Danmörk fylgja fast á hæla Svíþjóðar í fjölgun ferðafólks með 8,7 og 7,6%, en sem fyrr segir eru hér aðrar Norðurlandaþjóðir ekki einu sinni hálfdrættingar á við Ísland í þessum efnum og mega þær þó vel við una miðað við önnur lönd Evrópu og aðrar álfur, að ekki sé þá talað um Finna sem upplifa samdrátt í þessum efnum í fyrsta skipti í langan tíma.