Hver vinnur söngvakeppnina?

Á laugardaginn ræðst hvaða lag fer til Tel Aviv til að keppa fyrir hönd Íslands. Fimm lög komust upp úr undanriðlunum og mikil spenna ríkir um úrslitin. Hringbraut hefur greint líkurnar á því hvaða lag muni standa uppi sem sigurvegari.

Eins og ávallt á þessum árstíma stendur RÚV fyrir Söngvakeppni til að úrskurða hvaða lag beri að vera fulltrúi Íslands í Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva. Fyrirkomulagið á úrslitakvöldinu er með þeim hætti að fimm lög eru flutt, almenningur kýs með símum sínum og dómnefnd heldur á jafn mörgum atkvæðum og almenningur. Efstu tvö lögin fara svo áfram í einvígi og að lokum ráða atkvæði almennings því hvaða lag sigrar keppnina og verður fulltrúi Íslands í Evrópukeppninni í tónlist innanhúss. Sú breyting hefur verið gerð á fyrirkomulagi kosningarinnar að atkvæði úr fyrri kosningunni fylgja flytjendum í einvígið.  

Þar sem vinsældir meðal almennings ráða mestu um úrslitin hefur Hringbraut framkvæmt greiningu á vinsældum laganna fimm. Greiningin byggist á spilunum á lögum flytjenda á Spotify og YouTube. Lagðar voru saman spilanir á lögunum í mismunandi útgáfum, þannig eru á YouTube upp í fjórar mismunandi útgáfur, hljóðversútgáfa, flutningur á sviði, tónlistarmyndband og ensk útgáfa, á Spotify eru ýmist aðeins íslensk útgáfa, eða útgáfa lags á íslensku og ensku. 

Niðurstaðan er sláandi. Þegar allar spilanir laganna á YouTube og Spotify eru lagðar saman virðast eingöngu tvö lög eiga möguleika á sigri á laugardag, slíkur er munurinn. Friðrik Ómar, sem flytur lag sitt Hvað ef ég get ekki elskað, er með ríflega 137 þúsund hlustanir, en Hatari, með lag sitt Hatrið mun sigra, hefur fengið yfir 556 þúsund hlustanir. Sjá má hlustanir annarra laga í töflu hér á síðunni.

Séu veðbankar skoðaðir er niðurstaðan á sömu lund. Samantekt Eurovisionworld á stuðlum veðbanka leiðir fram nákvæmlega sömu niðurstöðu og Hringbraut kemst að. 

Það má því búast við að Hatrið muni sigra ástina á laugardagskvöldið, reynist greining Hringbrautar rétt.

 

\"ESC