Hver tók hvern af lífi?

Hræðilegt er að sjá hvernig fjórða valdið, það er fjölmiðlar, hafa tekið mann af lífi 16 árum eftir að hann var réttilega dæmdur og hefur lokið afplánun fyrir brot sitt.

Þetta segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, í viðtali við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur í Fréttatímanum.

Auglýsingastjóri Stundarinnar hefur þegar gert athugasemd við ummæli Guðmundar og minnir á að það sé ekki rétt að sá sem sagður er hafa verið tekinn af lífi af hálfu fjölmiðla hafi í raun verið aflífaður.

„Nei þú þarna maður. Það var þessi dúddi sem tók mann af lífi. Sá getur ekki tekið upp fyrri störf, né gert nokkurn hlut. Hann er dáinn.
Atli er bara að taka afleiðingum gjörða sinna og hvað sem fólki kann að þykja um þetta mál, þá er þetta líkingamál þér til skammar,“ skrifar Heiða B. Heiðars, auglýsingastjóri Stundarinnar, þar sem hún deilir frétt Fréttatímans.

Í Fréttatímanum er rætt við Guðmund Inga sem furðar sig á að Lögmannafélag Íslands skuli setja sig á móti því að Atli Helgason lögmaður fái sín réttindi aftur en hann varð viðskiptafélaga sínum að bana árið 2000. Hefur mál hans vakið mikla athygli eftir að hann sótti um málflutningsréttindi eins og Kastljós greindi fyrst frá.

„Ég fordæmi afskiptasemi og í raun frekju Lögmannafélagsins í þessu máli og ég er þess fullviss að hjá þeim snýst þetta mál um pyngjuna hjá fámennum hópi lögfræðinga, sem og fordóma, frekar en siðferði eða lög,“ segir Guðmundur Ingi í samtali við Fréttatímann.

Einnig hefur Fréttatíminn eftir Guðmundi: „Ég get fullyrt það að Atli hefur iðrast fyrir sitt brot á svo margan hátt og það er margt sem gerir málið mjög flókið og erfitt sem ekki er hægt að rekja í fjölmiðlum. Það er ekki eðlilegt að fólk iðrist í fjölmiðlum og mér finnst hræðilegt hvernig fjórða valdið hefur misnotað sína aðstöðu til þess hreinlega að taka mann af lífi 16 árum eftir að hann var réttilega dæmdur og hefur lokið sinni afplánun.“