Hver ferðamaður aldrei eytt meiru

Ferðamönnum fjölgaði um 35 prósent á öðrum ársfjórðungi. Á sama tíma jukust tekjurnar af þeim um 44 prósent. Hagdeild Landsbankans hefur skoðað þetta og niðurstaðan er sem sagt sú, að hver ferðamaður hefur aukið neyslu sína á milli ára.

Landsbankinn segir afgang af þjónustujöfnuði vera 62,2 milljarða á öðrum ársfjórðungi. „Þetta er mjög svipuð upphæð og á sama tíma í fyrra þegar jöfnuðurinn nam 61,8 milljarði og jókst afgangurinn því um 400 milljarða eða 0,6 prósent. Útflutningur þjónustu nam 160 milljörrðum á fjórðungnum og jókst hann um 4,7 millljarpa milli ára eða þrjú prósent. Innflutningur þjónustu nam 97,8 milljörðum og jókst um 4,3 milljarða eða 4,6 prósent.

Sé útflutningurinn brotinn frekar niður sést að aukningin skýrist rétt eins og síðustu misseri fyrst og fremst af vexti í sölu ferðaþjónustu til erlendra ferðamanna en hér er átt við þjónustuliðinn ferðalög eins og hann er skilgreindur af Hagstofunni. Útflutningur ferðaþjónustu nam á þann mælikvarða 73,5 milljörðum á öðrum fjórðungi og jókst um 31 prósent milli ára. Á föstu gengi sést að raunaukning í sölu ferðaþjónustu var 44% miðað við sama tímabil í fyrra. Fjöldi erlendra ferðamanna var 35 prósent meiri á öðrum fjórðungi en á sama tímabili í fyrra. Þetta bendir því til þess að hver ferðamaður hafi aukið neyslu sína milli ára. Almennt hefur þetta verið raunin síðustu ár. Sala á ferðaþjónustu á föstu gengi hefur vaxið umfram fjölgun ferðamanna sem bendir til þess að þeir séu sífellt að auka neyslu sína.

Tekjur af hugverkanotkun drógust mikið saman milli ára. Langmesti samdrátturinn á útflutningshliðinni var í tekjum vegna notkunar hugverka en sá liður dróst saman um 12,9 milljarða. Útflutningurinn var óvenjumikill á þessu tímabili í fyrra eða 14,9 milljarðar. Sé litið framhjá þessum mikla samdrætti jókst heildarútflutningur þjónustu um 11,3 prósent milli ára.

Sem fyrr segir er hér stuðst við Hagsjá Landsbanka Íslands.