Hver er utanríkisstefna flokksins?

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins telur vafa leika á því hver utanríkisstefna Sjálfstæðisflokksins sé um þessar mundir, en nýjasti pistill hans á hringbraut.is fjallar um hvort flokkurinn styðji núverandi utanríkisráðherra og stefnu hans, eða ekki.

Þorsteinn byggir pistil sinn á frétt sem nýlega birtist í Fréttablaðinu þess efnis að bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra, sumsé formenn beggja stjórnarflokkanna, séu harla óánægðir með einarða afstöðu utanríkisráðherra í viðskiptabannsmálinu milli Evrópuþjóða og Rússa. Þar virðast formennirnir taka hagsmuni útflytjenda fram yfir þau viðurkenndu gildi íslenskrar utanríkisstefnu sem meirihluti þjóðarinnar hefur aðhyllst um langa hríð.

Þorsteinn spyr af hverju formennirnir hafi ekki andmælt frétt Fréttablaðsins sem væntanlega hafi verið þýdd af öllum sendiráðum hér á landi og lesin af erlendum ráðamönnum. Merkir þögn formannanna að þeir styðja ekki utanríkisráðherra og stefnu hans? Er sú þögn jafngildi staðfestingar á að svo sé?

\"Þetta er ekki hversdagslegt pólitískt þrætuepli,\" skrifar Þorsteinn: \"Málið snýst um grundvöll utanríkisstefnunnar sem staðið hefur í áratugi. Það er því ekki hægt að láta fullyrðingu Fréttablaðsins um ágreining í svo veigamiklu máli standa án andmæla ef hún er ekki á rökum reist.\"

Þorsteinn segir tvennt auka óvissuna í þessu efni: \"Annað er að fyrr á árinu fóru formenn stjórnarflokkanna ekki dult með efasemdir sínar um stefnu utanríkisráðherra. Þá hafði utanríkisráðherra betur og naut öflugs stuðnings þáverandi formanns utanríkisnefndar Alþingis. Nú nýtur hans ekki við með sama hætti í því embætti.\"

Hitt er að sögn Þorsteins að \"síðast þegar tekist var á um utanríkisstefnuna milli ráðherranna fól forsætisráðherra Byggðastofnun að skrifa skýrslu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun hugmyndin hafa verið að leggja hana til grundvallar stefnumótun landsins í utanríkismálum. Formlega er kannski ekki unnt að segja að þessi skýrslubeiðni hafi lýst vantrausti á utanríkisráðherra. En það er afar hófsöm ályktun að hún hafi gefið sterklega til kynna að forsætisráðherra hafi haft miklar efasemdir um að stefna utanríkisráðherra hafi verið á réttum rökum reist.\"

Þorsteinn skilur ekki að formenn stjórnarflokkanna taki ekki af öll tvímæli varðandi upplýsingar Fréttablaðsins. Eitt sé að Byggðastofnun sé fengin til að fikta í utanríkismálum - og forysta Framsóknarflokksins þurfi í sjálfu sér ekki að skýra það út fyrir kjósendum sínum, en \"einhvern veginn finnst manni að forysta Sjálfstæðisflokksins þyrfti að gera það,\" skrifar Þorsteinn Pálsson.