Margt bendir til þess að tölur hins opinbera yfir fjölda ferðamanna sem koma til Íslands séu ofmetnar. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála segir það ekki vera nýjar fréttir að réttar tölur um fjölda erlendra ferðamanna liggi ekki fyrir.
Spyrja má hvers vegna. Hver hefur hag af því að ekki sé vitað hvaða tölur eru réttar. Þessar tölur með öðrum orðum eru ofmetnar.
Þórdís Kolbrún segir að alltaf hafa legið fyrir að fjöldi ferðamanna væri ofmetinn. Sá fyrirvari hefur alltaf verið gerður við þessar tölur. Skekkjan er því ekki ný af nálinni segir Þórdís Kolbrún.
Þórdís Kolbrún vill ekki taka undir með Samtökum í ferðaþjónustu (SAF) þegar samtökin benda á tölur sem segja að fimm af hverjum hundrað erlendum ferðamönnum sem koma til Íslands fari aldrei út úr Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Ein sex prósent fari út fyrir flugstöðvarsvæðið en gisti ekki yfir nótt. Þrjú prósent erlendra ferðamanna eru búsetti hér á landi.
Samkvæmt spám sem greinendur hafa vitrnað til þá má telja að fjöldi erlendra ferðamanna verði um 2,3 milljónir árið 2017. Þetta er þó málum blandið og ekki augljóst hver rétta talan er.
Nánar www.kjarninn.is www.saf.is www.ferdamalastofa.is