Hver er framtíð samfylkingarinnar?

Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur og einn af stofnendum Samfylkingarinnar, og Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur, prófessor og forseti hugvísindasviðs Háskóla Íslands, verða gestir í Þjóðbraut í fyrramálið. Þátturinn hefst klukkan tíu.

Þau fjalla um íslensku stjórnmálaflokkana og eins um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.

Björt framtíð og Samfylkingin eiga það sameiginlegt að hafa skipt um forystu án þess að þess verði vart í fylgisaukningu. En hvers vegna gerist það, eða kannski er réttara að segja hvers vegna eykst fylgið ekkert með nýrri forystu.

Kristrún og Guðmundur hafa skoðanir á því. Hvaða möguleika eiga þessir flokkar? Svör við þessum spurningum og svo mörgum öðrum fást klukkan tíu í fyrramálið.

Þáttinn verður einnig hægt að hlusta á í útvarpi Hringbrautar, fm 89,1.