Ísland og umheimur hefur slegið í gegn á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.
Næsti þáttur er á dagskrá Hringbrautar sunnudagskvöldið 5. maí, kl. 20. Þá getur þú fundið Facebook-síðu þáttarins með því að smella á þennan hlekk: https://www.facebook.com/umheimur/posts/412075226041055
Í þættinum á morgun verður rætt við Sóleyju Kaldal, áhættu- og öryggisverkfræðing Landhelgisgæslunnar, um alþjóðlega björgunar- og viðbragðsaðstöðu á Íslandi. Þar kemur margt áhugavert fram.
Landhelgisgæslan hefur víðtækt leitar og björgunarhlutverk: á landi, við loftför, og við sjófarendur. En hver er björgunargeta Íslands? Hvert er æskilegt viðbúnaðarstig vegna leitar og björgunar?
Hver væru viðbrögð við bráðamengun eða stórslysum á stórum farþegaskipum? Ef bjarga þyrfti hundruðum manna af víðernum norðurslóða er betra að hafa mannafla og tæki. Höfum við það? Hvernig kallar þetta á samvinnu með öðrum þjóðum?
Allt eru þetta spurningar sem verður reynt að svara í þættinum.