\"Það er víst best að taka einn storm í einu og því verður ekki farið nánar í það að svo stöddu. Eftir helgi heldur lægðagangurinn síðan áfram,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.
Það er ekkert hæglætis sólbaðsveður í kortunum heldur þvert á móti kafaldsbylur og hríðargeyfa sem tekur yfir sviðið strax í kvöld. Þá gengur í suðaustanstorm á Suður- og Vesturlandi með snjókomu í fyrstu og er von á stórhríð. Á morgun kemur nýr stormur til landsins og eru landsmenn beðnir um að huga að lausamunum.
Gul viðvörun er í gildi fyrir Suðurland, Faxaflóða, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra og eystra, Austurland að Glettingi og Austfirði.
Í fyrramálið gengur í sunnan- og suðaustanstorm eða -rok fyrir norðan og því ljóst að flestir á landinu þurfa að huga að lausamunum fyrir kvöldið og nóttina. Á morgun snýst hann í allhvassa suðvestlæga átt og kólnar í veðri með slydduéljum og síðan éljum, eða hefðbundnum útsynningi eins og Sunnlendingar kalla það.
Á laugardag dregur úr útsynningnum, en á sunnudag gengur í öflugan sunnanstorm með talsverðri rigningu. Það er víst best að taka einn storm í einu og því verður ekki farið nánar í það að svo stöddu. Eftir helgi heldur lægðagangurinn síðan áfram,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Suðurlandi en þæfingsfærð er á Lyngdalsheiði.