Hver á vottunina?

Þjóðbraut verður hvorutveggja í útvarpi og sjónvarpi í dag. Hádegisþátturinn er í útvarpi Hringbrautar millli kl 12:30 og 13:00. Sjónvarpsþáttruinn er á dagskrá milli 21:00 og 21:30.

Í hádegisútvarpinu mun Sigurjón M. Egilsson tala við Jón Bergsson, sem er lyfjafræðingur og vottaður úttektarstjóri.

Þeir munu tala hvað eigi að gera með vottaðar úttektir, hver á þær og hvernig á aðð fara með þær. Birta eða þagga.

Í sjónvarpsþættinum í kvöld fær Sigurjón til sín tvo þingmenn, sem jafnframt eru þingflokksformenn sinna flokka, en það eru þær Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð, og Oddný G. Harðardóttir Samfylkingu.

Þættinum lýkur síðan á samtali Lindu Blöndal og Inga Dóra Pétursdóttur, framkvæmdastjóra UN Women á Íslandi um Sæmdarsettið, sem er táknræn gjöf, sem gerir konum á flótta í Írak kleift að viðhalda sjálfsvirðingu og reisn sinni. En UN Women dreifir nú sæmdarsettum til kvenna á flótta í Írak sem innihalda dömubindi, sápu, tannbursta, tannkrem, teppi, barnaföt, tvo pakka af bleium, uppþvottasápu, handklæði og vasaljós.