Hvenær gýs næst á reykjanesskaga?

Þannig hljómar fyrirsögn á Vísindavefnum. Þar er fjallað um nýjustu vendingar á Reykjanesi og þá ógn sem vofir yfir Grindvíkingum. Í svari á Vísindavefnum segir:

„Stutta svarið við spurningunni er einfaldlega „það er engin leið að vita það“. Það sem núna er að gerast við Grindavík kann að vera fyrsta vísbending um að næsta goshviða sé í aðsigi. Því skiptir höfuðmáli að vel sé fylgst með.“

Þá segir á Vísindavefnum enn fremur:

„Margir [eru] á þeirri skoðun að mælingar og eftirlit sé heppilegri leið til að segja fyrir um hegðun eldfjalls. Þá er reynt að finna út með mælingum í hvaða ástandi eldstöðin sé og beita síðan eðlisfræði eða efnafræði til að gera spá um þróun kerfisins.

Þá segir enn fremur:

Reynt hefur verið að reikna út líkur á því hvenær næst muni gjósa á Reykjanesskaga. Fyrstu tilraun af því tagi gerðu Wood og fleiri. Rannsókn þeirra er gölluð fyrir þá sök að þar voru tekin með gos í Brennisteinsfjöllum á 14. öld, en síðast gaus á skaganum í Reykjaneseldum 1210-1240. Töldu þeir 5-10% líkur á að goshrina hæfist innan 100 ára.

Önnur tilraun var gerð fyrir fáum árum, en þá hafði haldbetri þekking safnast um tímasetningu gosa. Þar var reiknað út frá gosskeiðum síðustu 3500 ára. Niðurstaðan var sú að 4-7% líkur væru á að næsta gosskeið hæfist innan 50 ára.

Á sama hátt töldust líkur á nýju gosskeiði innan 200 ára 17-26%. Báðar þessar tilraunar eru marklitlar í ljósi nýrrar vitneskju um upphaf síðasta gosskeiðs.

Nú er vitað að það hófst fyrir rúmum 1200 árum og þá um líkt leyti í tveimur eldstöðvarkerfum skagans.“

Þá segir að nauðsynlegt sé að þekkja gossöguna lengra aftur í tímann til að fá betra mat á gosvá. Afla þarf frekari gagna um þau gosskeið sem nú eru þekkt, og jafnframt um þau eldri sem lítið er vitað um.“

Hér má lesa svar Vísindavefsins í heild sinni.