Sumir Íslendingar hafa ríka tjáningarþörf og hafa tekið samfélagsmiðlum líkt og facebook fagnandi. Við þekkjum öll pólitíska gaurinn sem byrjar að pósta reiði sinni klukkan sjö á morgnana og ann sér ekki hvíldar allan daginn. Við þekkjum líka þá sem með lúmskum hætti reyna að selja okkur eitthvað á facebook undir öðru yfirskini. Svo þekkjum við \"humble brag\" statusana eða þá haturspóstana. Allt lýtur að einu. Margir nota facebook og aðra miðla til að orð þeirra heyrist, til að ná athygli.
En hvenær dagsins eru mestar líkur á að við náum eyrum annarra? Að því gefna að við höfum eitthvað að segja og viljum markera okkur í umræðunni? Það er líka í lagi að lúra þögull og virða fyrir sér afurðir annarra. Tíbetski munkurinn heldur munni af því að hann hefur náð þeim þroska að þurfa ekki að gaspra um hvað sem er. En hann býr líka fjarri markaðsumhverfiinu uppi í fjalli. Ekki eru allir þar.
Athygli.is hefur tekið saman nokkra punkta um tímasetningar, hvenær mestar líkur eru á að ná til sem flestra. Í úttektinni segir að tímasetningar stjórnist oft af miðlinum. Athygli vitnar til rannsókna á þessum sviðum sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum en vel megi nýta helstu niðurstöður hér á landi einnig.
Skoðum fyrst facebook:
\"Besti tíminn til að dreifa efni á Facebook er kl. 15.00 á miðvikudögum. Aðrir heppilegir tímar eru kl. 12.00-13.00 um helgar og milli kl. 13.00-16.00 á þriðjudögum til föstudaga. Virkni notenda við efni (engagement) er 18% hærra á fimmtudögum og föstudögum. Efni sem er dreift á virkum dögum frá kl. 13.00-16.00 fær yfirleitt hærri smelli. Á föstudögum fer notkunin upp um 10% sem bendir til þess að fólk sé farið að hægja á sér við vinnu og komið með hugann annað. Rannsóknir benda til þess að versti tíminn til að dreifa efni á Facebook sé um helgar milli kl. 20.00-08.00.\"
Þá höfum við það. En hvað um Twitter?
\"Einsog með Facebook þá fer notkun miðilsins mikið til eftir notendanum sjálfum. Ólíkt Facebook þá benda rannsóknir til þess að stór hluti notenda Twitter noti miðilinn sem RSS efnisveitu og þá frekar þegar þeir eiga lausan tíma í kaffipásum, í strætisvagni til og frá vinnu o.þ.h. Samkvæmt rannsóknum er besti tíminn til að deila efni á Twitter á virkum dögum frá kl. 12.00-15.00 og kl 17.00.\"
Samkvæmt Athygli.is er fyrir fyrirtæki á fyrirtækjamarkaði talið að best að deila efni á virkum dögum, hæsta hlutfall smella á tvít sé á miðvikudögum. \"Það kemur kannski ekki á óvart að á þessum markaði eru best að deila efni á vinnutíma þar sem rannsóknir hafa sýnt að það fær að jafnaði 16% fleiri smelli.\"
Fyrir fyrirtæki á einstaklingsmarkaði eru miðvikudagar og helgar bestu dagarnir til að fá sem hæsta tíðni virkni á pósta. Þetta efni fær 17% fleiri smelli á um helgar en aðra daga.Sum fyrirtæki hafa jafnframt séð árangur með því að deila efni milli kl. 2.00-3.00. 6.00-7.00 og kl. 9.00-10.00.
Einnig segir: \"Það hefur sýnt sig að það efni sem er áhrifaríkast er efni sem hefur skýrt markmið. Hvort sem markmiðið er að auka umferð um vefsvæði þitt, fá komment, deilingar eða eitthvað annað. Almenna reglan er að efnið á að vera raunverulegt og hafa eitthvað gildi fyrir markhópinn. Á Facebook og Twitter ætti að miða við að 30% af efninu sé nýtt til kynninga og má tengja það við vefsvæði. 70% ætti að vera fræðandi eða hafa skemmtanagildi fyrir markhópinn þinn með það að markmiði að byggja upp raunverulegt samband þar sem markhópurinn kemur aftur og aftur í leit að gæðaefni.\"
Þá er mikilvægi góðs myndmáls áréttað sem ein lykilbreytan í árangri.