Hvellurinn: margvísleg óþægindi

Færð er ekki að fullu könnuð enn á Norðurlandi eftir því sem fram kemur á vef Vegagerðarinnar en enn er vegur lokaður á Þverárfjalli. Ófært er á Víkurskarði og Mývatnsheiði, og eins á Hólaheiði og Hófaskarði en þar er alls staðar verið að moka.

Vegur er enn lokaður yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi sem og á Fjarðarheiði en verið er að moka bæði Fagradal og Oddsskarð. Mjög hvasst er í Hamarsfirði.

Vegir eru að mestu auðir á Suðurlandi.

Á Vesturlandi er þæfingur bæði á Bröttubrekku og Fróðárheiði en eins er sums staðar nokkur hálka.

Verið er að kanna færð og hreinsa vegi á Vestfjörðum.

Mikinn hvell gerði í gær með hvössu veðri víða norðanlands og mikilli snjókomu. Veðrið hefur valdið mörgum óþægindum en um 20 cm snjór er nú á Akureyri en mestallan snjó hafði tekið upp þar í hlýindum síðustu viku.

Margir lentu í vandræðum vegna ófærðar og snjóa í gær og nótt. Holtavörðuheiðin lokaðist. Þar urðu árekstrar og björgunarsveitir þurftu að hjálpa vegfarendum ofan af heiðinni.

Úr vindi mun draga en enn er storm­ur suðaust­an­lands. Í kvöld verður shæg átt og úr­komu­lítið og vægt frost.