Hve mörgum hefurðu sofið hjá?

Leikkonan Sofia Helin sem leikur Sögu Norén, lögreglukonuna mögnuðu í Broen, fór á kostum þegar þáttastjórnandi Skavlan, bauð henni í viðtal.

Í viðtalinu höfðu þau tvö hlutverkaskipti, Skavlan og leikkonan. Þar sem Saga er með Asberger heilkenni og kemur sér beint að hlutunum lenti þáttastjórnandinn snemma í vandæðum þegar Sofia í hlutverki Sögu fór m.a. að inna hann eftir fjölda bólfélaga.

Myndband af upptökunni má sjá hér. Sjón er sögu ríkari. En þó e.t.v. ekki Sögu ríkari!

(Enskur skjátexti fylgir upptökunni)