Hve mikið svíkja þingmenn undan?

Á blaðsíðu 7 í Morgunblaðinu í dag er heilsíðuauglýsing þar sem myndir af 12 þingmönnum og yfirmönnum skattamála hér á landi eru birtar undir fyrirsögninni: „Hve mikið svíkja þau undan?“

Þingmennirnir Ögmundur Jónasson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Karl Garðarsson, Höskuldur Þórhallsson, Ásmundur Einar Daðason, Össur Skarphéðinsson, Valgerður Gunnarsdóttir, Jóhanna, Frosti Sigurjónsson, Jóhanna María Sigmundsdóttir og Birgir Ármannsson eru öll nafnbirt á heilsíðunni.

Þar er vitnað í lög um dagpeninga, lögaðila, ættingja, ferðalög innanlands og utan.

Segir svo: „Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar hafa skattyfirvöld hafnað því með einbeittu tómlæti sínu að kalla eftir gögnum sem sanna að þeir aðilar sem fá greidda dagpeninga telji þá fram með þeim hætti sem lög kveða á um. Stórtækustu þiggjendur dagpeninga eru opinberir embbætismenn...“

Þá er spurt hvar í lögum Ríkisskattstjóri hafi stoð í lögum til að krefja aðila tengdum sjálfstæðum atvinnurekstri „ríkari sönnunargagna“ en hann sjálfan, opinbera embættismenn og flugliða. „Hvers vegna njóta sumir friðhelgi skattyfirvalda til frjálslegra framtals en aðrir?“

Þá kemur fram í auglýsingunni sem fyrirtækið Bindir og stál skrifar undir og virðist bera kostnað af, að fjárhæð greiddra dagpeninga geti numið allt að 60.000 krónum á dag.

Í viðtali við dv.is segir eigandi fyrirtækisins, Örn Gunnlaugsson, að hann hafi verið dæmdur til þess að endurgreiða 1200 þúsund krónur árið 2001 vegna dagpeninga sem hann fékk á ferðalagi sínu um Rússland.

„Þá þurfti ég að sanna að ég hefði eytt þessum pening, en það var auðvitað ekki hægt að fá nótu fyrir neinu þarna í Rússlandi... og þá er ég margoft búinn að hafa samband við skattstjóra, en honum virðist bara vera sama um málið,\" hefur DV eftir Erni um ástæðu birtingar auglýsingarinnar sem hann greiðir úr eigin vasa.