Hvatti til breytts verklags

Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, seg­ir í Morg­un­blaðinu í dag að hún hafi gert at­huga­semd­ir við að aðeins hafi staðið til að boða fimm karla í viðtal í tengsl­um við ráðningu nýs for­stjóra Borg­un­ar.

Hún hafi hvatt stjórn fé­lags­ins til þess að ræða við fleiri ein­stak­linga þar sem hún hefði haft vitn­eskju um að öfl­ug­ar kon­ur hefðu sótt um starfið einnig. Birna hafn­ar því að af­skipti sín af ferl­inu hafi verið óeðli­leg.

Þá hafn­ar Birna því að sú ákvörðun að end­ur­nýja ekki umboð Er­lend­ar Magnús­son­ar, stjórn­ar­for­manns Borg­un­ar, á aðal­fundi sem hald­inn verður um miðjan mars, teng­ist fyrr­nefndu ráðning­ar­ferli.