Vinstri græn: hvatning fyrir ungt fólk

Sóley Björk Stefánsdóttir, ein þeirra 74ra VG-flokksmanna, sem hafa sett nöfn sín á opinberan lista þar sem stuðningi er lýst við framboð Daníels Arnarssonar, 25 ára gamals starfsmanns flokksins í varaformannsembætti Vinstri grænna, hafnar því að hún telji brýnt að skipta Birni Val út sem varaformanni.

„Ég tel ekki í sjálfu sér brýnt að skipta Birni Val út sem varaformanni heldur tel ég gríðarlega brýnt að við sköpum það andrúmsloft inni í flokknum að litið sé á öll framboð með jákvæðum huga og að hverjum þeim sem hefur áhuga á að taka að sér ábyrgðarhlutverk inni í flokknum sé fagnað,“ segir Sóley í samtali við Hringbraut.

Fyrr í dag sagði Hringbraut í fréttaskýringu frá því að Björn Valur liti svo á sem hans eigið pólitíska líf innan VG sé undir í fordæmalausri aðgerð með því að hann fái áframhaldadandi stuðning sem varaformaður flokksins. Hann segist ekki vita dæmi þess að VG hafi notað svona aðferðir fyrir kosningar í flokknum að birta opinberlega stuðning við nýjan mann. Daníel fer fram gegn Birni Val eins og síðast þegar sá fyrrnefndi tapaði í kosningu. Björn Valur gaf út fyrir nokkru að hann myndi sækjast eftir áframhaldandi varaformannsembætti.

Sóley Björk er oddviti VG-fólks á Akureyri og situr sem bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Akureyrar. Björn Valur hefur lengst af búið í Ólafsfirði og var þingmaður NA-kjördæmisins en hann hefur stundað sjómennsku lengst af starfsævi. Hann er nú varaþingmaður og segist ekki fara fram oftar fyrir flokkinn ef hann fær ekki stuðning innan VG til að halda áfram sem varaformaður. Það sé ekki hótun heldur sé lífið einfaldlega þannig.