Búast má við hríðarveðri á fjallvegum á norðan- og austanverðu landinu í dag, auk þess sem gert er ráð fyrir vindhviðum við fjöll. Snörpustu hviðurnar verða í Öræfum, en þar munu þær væntanlega ná í kringum 40 m/s.
Það er stíf norðanátt í kortunum næstu daga með éljum fyrir norðan og austan og kólnandi veðri, en talsvert frost verður á landinu uppúr miðri viku.
Norðaustan-áttirnar verða nokkuð þrálátar þessa vikuna með 15 til 23 metra vindhraða. Hvassast verður á Vestfjörðum og auðaustanlands, en syðra og um vestanvert landið verður rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla. Yfirleitt verður hægari vindur suðvestanlands og þurrt að kalla.
Frostið herðir svo þegar líður á vikuna og verður á bilinu 4 til 12 stig á daginn í norðankalda og herðir enn á frosti á kvöldin.