Verði hratt gengið til verka gæti fyrsti áfangi nýs flugvallar í Hvassahrauni verið tilbúinn innan áratugar að því er fram kemur í nýju mati forsvarsmanna Icelandair á flugvallakostum á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kemur fram á forsíðu Fréttablaðsins í dag þar sem greint er frá því að starfshópur á vegum samgönguráðuneytisins hafi nýverið skilað skýrslu um málið þar sem lagt er til að flugvallarskilyrði í Hvassaahrauni verði fullkönnuð.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri segir í sömu frétt að hann stefni á fund með samgönguráðherra auk þess sem hann muni ræða framhald málsins í borgarráði: \"Ég á von á því að næstu skref skýrist í kjölfarið,\" segir hann.
Í téðu mati Icelandair kemur fram að veðurskilyrði í Hvassahrauni séu betri en í Keflavík. Fékagið áætlar að kostnaður við völlinn verði um 140 milljarðae hið minnsta en þó sé mögulegt að hann verði nær 200 milljörðum.