Fjöldi hagsmunaaðila í innanlandsflugi, flugsérfræðingar og sveitarstjórnarmenn hefur risið upp frá því Rögnunefndin kynnti niðurstöðu sína um nýja staðsetningu innanlandsflugvallar á höfuðborgarsvæðinu í gærdag - og andmælir henni harðlega.
Ljóst er af fyrstu viðbrögðum við niðurstöðu Rögnunefndarinnar, sem mælir með nýjum flugvelli í Hvassahrauni sunnan Hafnarfjarðar, að enginn friður verður um hana. Hún mun á engan hátt höggva á þann hnút sem deilan um Reykjavíkurflugvöll hefur verið í um árabil.
Fyrir það fyrsta eru sveitarstjórnarmenn í Vogum, sem Hvassahraun tilheyrir, forviða á tillögunum þar eð þær hafi aldrei verið bornar undir þá - og þá hafa sveitarstjórnarmenn í Hafnarfirði og Garðabæ spurt hvernig leysa eigi samgöngumál á milli flugvallar og Reykjavíkur sem verði í uppnámi, verði af þessum áformum. Uppbygging vallarins ein og sér er talin munu kosta 22 milljarða - og er þá eftir að hanna og fjármagna allar vegtengingar, en ekkert samráð hefur verið haft við sveitarstjórnarfólk á svæðinu vegna þessa. Þá er augljóst að sveitarstjórnarmenn um allt land eiga eftir að leggjast gegn þessum tillögum af miklum þunga, að ógleymdum borgarfulltrúum, en fjarri lagi er að þeir séu allir hlynntir niðurstöðu Rögnunefndarinnar.
Loks eru flugsérfræðingar undrandi á tillögunum svo ekki sé meira sagt. Ómar Þ. Ragnarsson, einn reyndasti flugmaður landsins til margra áratuga, segir í Morgunblaðinu í dag að verið sé að vekja upp gamlan draug með þeim áformum að byggja nýjan völl í Hvassahrauni. Hann minnir á að fyrir 55 árum hafi verið uppi hugmyndir um flugvöll í Kapelluhrauni, skammt frá Hvassahrauni, en þær hugmyndir hafi verið slegnar út af borðinu vegna sakir þess að algengasta vindáttin á höfuðborgarsvæðinu, austsuðaustanáttin, skapi mikla ókyrrð á þessu svæði af landfræðilegum ástæðum. Ómar spyr: \"Hefur Reykjanesfjallgarðurinn fjarlægst og lækkað síðustu 55 árin og hefur vindurinn minnkað.\"
Og Jónas Kristjánsson ritstjóri segir málið einfaldlega trikk í bloggi sínu: \"Gallinn við vinnu og niðurstöður Rögnunefndar er, að dæmið snýst ekki um neinn veruleika. Annað hvort vill fólk hafa innanlandsflugvöll áfram í Vatnsmýri eða vill flytja flugið til Keflavíkurvallar. Heilbrigð skynsemi segir, að þessir tveir séu kostirnir, enda langódýrastir. Óðs manns æði sé að reisa flugvöll frá grunni á nýju svæði. Að setja upp nefnd um tugmilljarða hugmyndir var eyðsla á tíma og fé. Tilgangur Rögnunefndar var raunar ekki að leysa mál, heldur fresta illdeilum fram yfir kosningar. Hún var pólitískt trikk og niðurstaðan í samræmi við það. Nú má setja þetta plagg í ruslakörfuna og halda áfram að rífast.\"