Hvarflaði aldrei að mér að hætta

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins kveðst aldrei hafa leitt hugann að því að hætta í starfi sínu þegar umræða um þátt hennar í lekamálinu svokallaða stóð sem hæst.

Hún segir í löngu viðtali í Fréttablaðinu í dag að búið sé að fara í gegnum málið af ýmsum yfirvöldum og meta aðkomu hennar að því. Þá hafi Ólöf Nordal innanríkisráðherra lýst yfir trausti á hana: \"Þannig að það er kannski fátt sem eftir á að segja í þessu máli,“ segir hún í viðtalinu.

Hún segist á einhverjum tímapunkti hafa hætt að taka þátt í umræðunni um lekamálið til að hafa vinnufrið: \"Fókusinn minn fór þangað, inn í mín verkefni og ég lét eftirlitsstofnunum eftir að sinna sínu hlutverki, sem þær gerðu. Ég gat lítið annað gert.“ Á stgundum hafi henni fundist umfjöllunin um sig ósanngjörn, en hún þó hafi skilning á því að fjölmiðlafólk og aðrir voru að sinna sinni vinnu. En allt málið hafi verið lærdómsríkt fyrir hana.

Svo sem kunnugt er birti Persónuvernd úrskurð sinn í febrúar þess efnis að Sigríður Björk hefði brotið lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga með því að skrá ekki í málaskrá embættisins þegar hún sendi Gísla Frey Valdórssyni, þáverandi aðstoðarmanni Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, greinargerð um hælisleitandann Tony Omos við upphaf lekamálsins svokallaða. Þar fyrir utan hefði henni ekki verið heimilt að senda upplýsingar um hælisleitandann á milli húsa eins og hún gerði í þessu tilviki. Hún var ekki áminnt af ráðherra fyrir þessar gjörðir sínar, þrátt fyrir niðurstöðu Persónunefndar.