Hvar eru breytingar á stjórnarskránni?

Flestir frambjóðendur til forseta Íslands tala um að þeir muni beita sér fyrir breytingum á stjórnarskránni. Starfandi er stjórnarskrárnefnd sem hefur einmitt þetta hlutverk. Meðal nefndarmanna eru Birgir Ármannsson Sjálfstæðisflokki og Valgerður Bjarnadóttir Samfylkingu.

Birgir og Valgerður ræða stöðu málsins á Hringbraut í kvöld, klukkan 21:45.

Stjórnarskrárnefndin hefur þegar orðið ásátt um að leggja til þrjár breytingar á stjórnarskránni; um vernd náttúru og umhverfis, um náttúruauðlindir í þjóðareign og þjóðaratkvæðagreiðslur.

Í hvaða farvegi málið er skýrist í umræðunni í kvöld og eins hvort forsetaframbjóðendurnir muni hafa stöðu til breytinga verði þeir, sem þannig tala, kjörnir til embættisins.

Umræða um stjórnarskrána í kvöld.