Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfyllkingarinnar, spyr á Facebook hvar Eygló Harðardóttir sé. Össuri finnst Eygló hlaupa í felur þegar mikið liggur við. Á síðustu stundu afboðaði hún sig í þáttinn Þjóðbraut á Hringbraut í gær.
Össur skrifar: „Er það hlutverk opinberrar stofnunar að pína hundruð manna í vonlausri stöðu á húsnæðismarkaði til að velja á milli gríðarlegrar hækkunar á leigu eða vera kastað á kaldan klaka? - Það er svona einsog mega allra náðarsamlegast velja milli þess að vera hengdur eða skotinn. - Eygló Harðardóttir er ábyrg fyrir bæði velferð leigjenda og Íbúðalánasjóði. Af hverju grípur konan sem lýsir sér sem verndara hrjáðra og smáðra ekki í taumana? Það er engu líkara en Eygló Harðardóttir hlaupi alltaf í felur ef upp koma mál sem hún getur ekki kennt Bjarna Ben um. - Hvar er Eygló?“