Hvammsvirkjun af stað strax í ár

Forkólfar Landsvirkjunar segja að undirbúningur að gerð Hvammsvirkjunar í Þjórsá geti hafist hvað úr hverju en brúargerð hjá Árnesi og tengivegur milli Þjórsárdals og Landvegar verði eitt af fyrstu útboðunum vegna verksins.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem segir jafnframt að útboð vegna annarra þátta virkjanagerðarinnar, svo sem stíflugerðar og véla- og rafbúnaðar bíði næsta árs, en vel sé hægt að byrja aðstöðugerð á svæðinu á seinnihluta þessa árs.

Virkjanasvæðið er á umráðasvæði Skeiða- og Gnúpverjahrepps annars vegar og Rangárþings ytra hins vegar. Bæði sveitarfélögin þurfa að gefa leyfi sitt fyrir framkvæmdum áður en þær hefjast og auk þess þarf Orkustofnun að gefa út virkjanaleyfi áður en hafist er handa.

Þá kemur fram í blaðinu að Skipulagsstofnun þarf að staðfesta núverandi umhverfismat á áhrifum Hvammsvirkjunar sem er orðið 12 ára gamalt áður en lengra verður haldið.

Hvammsvirkjun er efsti virkjanakostuirinn í neðanverðri Þjórsá en þar fyrir neðan hefur verið horft til Holtavirkjunar og Urriðafossvirkjunar af þeim sem á annað borð telja virkjanir þar koma til greina. Uppsett afl Hvammsvirkjunar verður 82 MW, en til samanburðar er Búrfellsvirkjun ofar í ánni 140 MW og Kárahnjúkavirkjun á Austurlandi, langstærsta virkjun landsmanna, 690 MW.  

Heildarverktími við virkjanagerðina er áætlaður hálft fjórða ár, en samkvæmt upplýsingum Landsvirkjunar verða sjónræn virkjunarinnar lítil. Uppistöðulón virkjunarinnar verður um fjórir ferkílómetrar að flatarmáli, en til samanburðar er Hálslón ofan Kárahnjúkavirkjunar 57 ferkílómetrar þegar það er fullt, sem er mjög svipað og Blöndulón í Húnaþingi.