Lewis hamilton heimsmeistari í f1 gagnrýnir kristján þór

Á dögunum tók Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ákvörðun um að leyfa hvalveiðar til næstu fimm ára. Var sú ákvörðun tekin þvert á óskir Guðmundar I. Guðbrandssonar, umhverfisráðherra og margra annarra sem gagnrýnt hafa hvernig staðið var að ákvörðuninni.

Heimsmeistarinn í Formúlu 1, hinn breski Lewis Hamilton, gagnrýnir hvalveiðar Íslands harðlega á Instagram í dag og segir stjórnvöld hér á landi skammsýn og að ákvörðun þeirra séu honum vonbrigði, ekki síst þar sem hvalaskoðun sé mun meira virði heldur en sala á hvalkjöti.

Birtir hann myndskeið af hvali sem dregin er að landi í Hvalfirði.

Nánar á

https://eyjan.dv.is/eyjan/2019/02/26/hvalveidiakvordun-kristjans-gagnrynd-af-heimsmeistara-med-10-um-milljonir-fylgjenda/