Hvalveiðar - ófriðarbál eins manns?

Skiptar skoðanir eru meðal landsmanna um hvalveiðar Íslendinga. Lítil umræða hefur þó orðið um veiðarnar í seinni tíð eftir að Samtök ferðaþjónustunnar sendu fyrir tveimur árum hávært ákall til Ragnheiðar Elínar Árnadóttur ráðherra um að grípa inn í og láta stöðva veiðarnar. Hvalveiðar sköðuðu hagsmuni túrismans og þá ekki síst ferðamennsku sem tengist hvalaskoðun á suðvesturhorninu en þar er um ört vaxandi auðlind að ræða, en áhyggjum hefur verið lýst af því að veiðar kunni að styggja torfurnar og fæla þær frá skoðunarsvæðum.

Í Kvikunni á Hringbraut í gærkvöld tókust á þeir Páll Jóhann Pálsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem styður hvalveiðar og Sigursteinn Másson talsmaður dýraverndarsamtaka sem berst alfarið gegn hvalveiðum, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar. Fram kemur hjá Páli Jóhanni að hvalurinn sé ein af auðlindum okkar íslendinga. \"Við þurfum að nýta hann, hvalurinn er mikilvægur hlekkur, ef við ætlum að friða hann þá veit ég ekki hvar það endar,” segir þingmaðurinn. Hann spyr hvar dýravegferðin endi ef Íslendingar missi réttinn á að lóga dýrum.

Sigursteinn Másson ræðir þann diplómatíska skaða sem þegar hafi orðið vegna hvalveiða og kunni að verða mun meiri, hvernig alþjóðasamskipti sem mörkuð séu andúð á hvalveiðum hafi leitt til viðskiptaþvingana gegn Íslendingum. Í raun sé aðeins einn maður sem hafi stórhagsmuni af hvalveiðum hér innanlands, Kristján Loftsson.

Sigursteinn hafnar því að stilla umræðunni þannig upp að um ræði sjálfsagða hagsmuni Íslendinga gagnvart \"heimskulegum viðhorfum\" útlendinga utan landsteinanna. Málið snúist um að \"einn maður í heimi\" stundi stórhvalveiðar og reyni að stunda milliríkjaviðskipti með hvalköt á sama tíma og heimurinn hafi komið sér saman um að hvalastofnar séu í hættu og að þá beri að vernda.

Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, þáði ekki boð um að koma í þáttinn, en þar er spurt að hve miklu leyti einkahagsmunir Kristjáns og tengdra aðila ráði stefnu stjórnvalda.

Kvikan er endursýnd í dag og um næstu helgi, en frumsýnd -öll mánudagskvöld klukkan 21:30.