Hvalurinn mættur aftur í gróttu: „okkur var sagt að hann hafi verið skotinn og sprengdur“

„Okkur var sagt að hann hafi verið skotinn og sprengdur og sökkt en hann er hér alheill.“

Þetta segir Sveinn Vilberg Garðarsson, vélamaður hjá Seltjarnarnesbæ, í samtali við Fréttablaðið.

Sveinn segir að um sé að ræða sama hval og rak að landi við Káravík á mánudaginn. Sveinn furðar sig á að ekkert virðist hafa verið gert til að sökkva dýrinu. Einu ummerkin á hvalnum er skotsár og er hvalurinn „steindauður“ og engin merki um að reynt hafi verið að sökkva honum.

Þá segir Sveinn að búið sé að staðfesta að um sama dýr sé að ræða. Gagnrýnir Sveinn Reykjavíkurborg fyrir að hafa ekki klárað málið eins og til stóð. Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.