Hvalur hf. fékk í gær leyfi til veiða á langreyðum. Leyfið gildir í fimm ár. Mbl.is greinir frá og vísar til svars við fyrirspurn sem miðillinn sendi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Áður hafði verið greint frá misvísandi svörum varðandi úthlutun leyfis. Ólafur Ólafsson skipstjóri á skipinu Hval 9 sagði til dæmis í fréttum Stöðvar 2 fyrir rúmum mánuði að leyfið fyrir langreyðaveiðum hefði borist of seint, í lok febrúar, og því yrði engin hvalveiðivertíð hjá Hval hf. í ár. Hið rétta var þó að fyrirtækið hafði ekki fengið neitt leyfi og sótti raunar ekki um það fyrr en 14. mars.
Nú hefur leyfið verið veitt og samkvæmt reglugerð sem Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf út 19. febrúar eru veiðarnar frjálsar þeim sem fengið hafa leyif þar til tiltekinn heildarfjöldi dýra hefur verið veiddur. Fyrir yfirstandandi ár má veiða samtals 209 langreyðar.
Í fyrra voru 145 langreyðar veiddar við landið og stóð vertíðin yfir í samtals 98 daga frá 19. júní.