Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, sem á og rekur Hvalfjarðargöng, var gestur í Þjóðbraut í kvöld. Þar sagði hann að nú fari um sex þúsund bílar um göngin hvern dag og að öryggisins vegna megi þeir ekki verða fleiri átta þúsund hvern dag. Það styttist því að göngin anni ekki þeirri umferð sem mun þurfa að sinna.
Gísli er ósáttur með að engin áform eru uppi um hvernig gjaldtöku á verða varið á komandi árum og honum þykir stjórnvöld draga lappirnar.
En þar sem göngin eru að fyllast, eða nálgast hámark þess sem þau geta, hvers vegna ekki að grafa ný göng við hlið þeirra sem fyrir eru?
Gísli segir Spöl ekki ætla að gera það. Það tók þrjú ár grafa göngin og gera þau nothæf. Nú eigi slíkt að taka skemmri tíma, vegna þess að önnur göng eru til og því er bergið þekkt og ekki síst vegna þess að nú er mun auðveldara að fjármagna göng, en það var fyrir um 20 árum. Gísli segir boltann vera hjá ríkinu.
Eru Spalarmenn í fýlu?
„Það held ég ekki,“ sagði Gísli og bætti við að það nú styttist í að Spölur skili lyklunum og hætti starfsemi, sem verði seinni hluta ársins 2018. Þá verða Hvalfjarðargöngin ríkiseign.
Þess má geta að þær spár sem gerðar voru í upphafi, um umferð um Hvalfjörð, eru löngu sprungnar. Enginn sá fyrir þá miklu umferð sem nú er.