Hvalaskoðun tvöfaldast á 5 árum

Hvalaskoðun við strendur Íslands hefur aukist til mikilla muna í ferðaþjónustunni hér á landi á síðustu fimm árum. Þess sér best stað í fjölgun fyrirtækja sem stunda hvalaskoðun en þeim hefur fjölgað um helming á þessum tíma, úr sjö í  fimmtán útgerðir sem gera út fullgilda báta til hvalaskoðunar.


Ágætt er að horfa til einstakra landshluta þegar þessi aukning er skoðuð nánar. Húsavík hefur löngum verið ein helsta og vinsælasta hvalaskoðunarhöfnin á Íslandi frá því þessi liður íslenskrar ferðaþjónustu hóf göngu sína; í byrjun voru þar gerðir út tveir bátar af einu félagi þegar ævintýruð var að byrja fyrir röskum 20 árum, en nú eru fyrirtækin orðin þrjú með fimmtán báta sem sækja sjóinn frá vori til haustmánuða.    


Húsavík hefur löngum notið hátt í helmings hlutdeildar í hvalaskoðun hér á landi, enda liggur Skjálfandi vel við einum bestu hvalaslóðum við strendur Íslands. Engu að síður eru hvalaskoðunarfyrirtæki nú búin að binda festar í öllum landsfjórðungum Íslands.