Andstæðingar fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar í Árneshreppi fengu óvæntan stuðning úr Hádegismóum í dag með innblásnum pistli Víkverja í Morgunblaðinu. Efnistök og stíll benda eindregið til þess að Víkverji dagsins sé enginn annar en ritstjórinn Davíð Oddsson. Ef svo er má segja að það muni svo sannarlega um minna.
Víkverji hefur mál sitt á gildishlaðinni spurningu: „Hefur einhver lesið undursamlegt ljóð um virkjanir eða stóriðju? Séð dýrlega fallegt málverk af raflínum eða stíflum? Fallið í stafi yfir háspennuturnum?“
Nánar hér